Tveggja Turna Tal

Tveggja Turna Tal Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Tveggja Turna Tal, Podcast, Hafnarfjörður.

Seinni hlutinn með Birni Daníel er kominn á allar veitur. Þátturinn byrjar á stuttum innslögum frá gömlum þjálfurum og v...
18/01/2026

Seinni hlutinn með Birni Daníel er kominn á allar veitur. Þátturinn byrjar á stuttum innslögum frá gömlum þjálfurum og vinum og svo heldur Björn áfram að segja frá með sínum einstaka hætti.

Njótið vel!

Aron Baldvin Þórðarson er meðal efnilegustu þjálfara landsins. Hann er heltekinn af fótbolta og sér í lagi taktísku hlið...
08/01/2026

Aron Baldvin Þórðarson er meðal efnilegustu þjálfara landsins. Hann er heltekinn af fótbolta og sér í lagi taktísku hliðinni af íþróttinni.

Aron Baldvin er orkumikill og duglegur náungi og hann er do-er. Þátturinn er kominn á allar veitur.

Góða skemmtun!

Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fék...
29/12/2025

Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra að þjálfun. Þar hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni.

Andri hefur þjálfað hjá Stjörnunni, KR og FH á höfuðborgarsvæðinu, en býr í dag á Stykkishólmi þar sem hann rekur vefsíðuna aperformance.net, sem býður upp á þjónustu fyrir félög, þjálfara og leikmenn.

Við Andri fórum vítt yfir sviðið.
Hvernig er hægt að þjálfa 100 stráka í 4. flokki og gera það faglega?
Hvernig leysir maður flækjustigið í því að halda úti 2. flokksstarfi kl. 20:45 í febrúar?
Eru leikmenn of oft meiddir á undirbúningstímabilinu – og af hverju?

Þetta er þáttur fyrir þjálfara, foreldra, stjórnendur og alla sem vilja skilja betur hvað fagleg uppbygging í íslenskum fótbolta krefst.

28/12/2025

Björn Daníel er 100% mesti aðdáandi Magga Mix á landinu

28/12/2025
27/12/2025

"Nú er okkar tími"

27/12/2025

Hvað gerðist í seinni umferðinnni?

26/12/2025

Heimir Guðjónsson elskaði alltaf Bjössa. Það var ekki alltaf gagnkvæmt!

Björn Daníel Sverrisson er einn besti leikmaður í sögu FH. Björn er einstaklega einlægur, ófeiminn og skemmtilegur náung...
25/12/2025

Björn Daníel Sverrisson er einn besti leikmaður í sögu FH. Björn er einstaklega einlægur, ófeiminn og skemmtilegur náungi og hann hafði frá nægu að segja í þættinum. Svo mörgu reyndar að við deilum þættinum í tvennt.

Við fórum yfir æskuna, handboltann, Aron Pálmarson, Heimi Guðjóns, Eið Smára, Magga Mix, Höfn, þjálfun, agabönn og miklu fleira í þessum þætti!

Þátturinn er að sjálfsögðu kominn á allar helstu veitur.

Gleðileg jól!

Address

Hafnarfjörður
220

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tveggja Turna Tal posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category