Heimildin.is

Heimildin.is Heimildin rekur upplýsandi ritstjórnarstefnu
með áherslu á gæði og dýpt í allri umfjöllun. Hún varð til við sameiningu Kjarnans og Stundarinnar í janúar 2023.
(169)

Heimildin er óháður vef- og prentmiðill sem stundar rannsóknarblaðamennsku. Heimildin er í dreifðri eignaraðild og byggir afkomu sína og þar með hagsmuni sína við dreifðan hóp almennings. Heimildin kom fyrst út föstudaginn 13. janúar 2023 eftir að aðstandendur Stundarinnar og Kjarnans ákváðu að sameina krafta sína utan um sameiginlegan tilgang: Að beita rannsóknarblaðamennsku til að veita almennin

gi aðgengi að óháðum upplýsingum. Bæði Stundin og Kjarninn voru stofnuð utan um sama höfuðtilgang og af sambærilegu tilefni. Árið 2013 stofnuðu Þórður Snær Júlíusson, Magnús Halldórsson og fleiri Kjarnann eftir inngrip eiganda í umfjöllun viðskiptadeildar Fréttablaðsins. Árið 2015 stofnuðu Heiða B. Heiðarsdóttir, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Jón Ingi Stefánsson og Jón Trausti Reynisson Stundina með hjálp hópfjármögnunar, í kjölfarið óvinveittrar yfirtöku fjársterkra aðila á DV. Hátt í 40 hluthafar eru að sameinuðu útgáfufélagi Heimildarinnar. Enginn þeirra fer með meira en 8% hlut. Í takt við grunnreglu útgáfunnar um valddreifingu verður bundið í samþykktir útgáfufélagsins að enginn fari með meira en 10% atkvæða á aðalfundi, óháð eignarhlut. Grunnstefna Heimildarinnar gengur út á sjálfbæran rekstur sem viðheldur sjálfstæði ritstjórnar. Heimildin mun dafna og vaxa í beinu samhengi við vilja áskrifenda. Ritstjórar Heimildarinnar eru Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Þórður Snær Júlíusson, stofnendur og fyrrverandi ritstjórar Stundarinnar og Kjarnans. Rannsóknaritstjóri er Helgi Seljan. Framkvæmdastjóri Heimildarinnar er Jón Trausti Reynisson, stofnandi, framkvæmdastjóri og fyrrverandi ritstjóri Stundarinnar. Hönnunarstjóri Heimildarinnar er Jón Ingi Stefánsson, stofnandi og fyrrverandi hönnunarstjóri Stundarinnar. Fjáröflunar- og auglýsingastjóri Heimildarinnar er Aðalsteinn Jörundsson.

Áskrift má panta í gegnum netfangið [email protected] eða á heimildin.is/askrift.
Þeim sem hafa áhuga á að leggja Heimildinni lið er bent á netfangið [email protected].

Address

Aðalstræti 2
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heimildin.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share