Jón Ólafs - Hlaðvarp

Call Website Contact the business

Jón Ólafs - Hlaðvarp Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Jón Ólafs - Hlaðvarp, Podcast, Skeljagrandi 14, Reykjavík.

40.þáttur: Jónatan Garðarsson.Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slö...
05/08/2026

40.þáttur: Jónatan Garðarsson.
Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði, byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska. Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar. Í áratugi hefur hann frætt okkur um tónlist á margvíslegan hátt í ljósvakamiðlum RUV, í dagblöðum og ritstýrt menningarþáttum. Jónatan fellur seint verk úr hendi og á fjarska erfitt með að segja nei. Hann hefur setið í hinum ýmsu nefndum og ráðum og koma þar trúmál, tónlist og náttúruvernd helst við sögu. Hlekkur á þáttinn í fyrstu athugasemd.

39.þáttur:  Óskar Hrafn Þorvaldsson.Óskar er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknatts...
28/07/2026

39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Óskar er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki. Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall. Þá hóf hann að skrifa um knattspyrnu í dagblöð og sinnti með tíð og tíma ýmsum yfirmannsstörfum í fréttamennsku og var hvað lengst hjá 365 miðlum auk þess sem hann skrifaði skáldsögu árið 2010. Óskar Hrafn var ekkert á leiðinni í þjálfun þegar hann fékk afdrifaríkt símtal úr vesturbænum og síðan hefur þjálfunin átt hug hans allan. Hlekkur á spjallið í fyrstu athugasemd.

38.þáttur: Vigdís HafliðadóttirEftir MH þreytti Vigdís inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún haf...
22/07/2026

38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir
Eftir MH þreytti Vigdís inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun. Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum. Vigdís syngur og semur lög og texta með kvennahljómsveit sinni Flott og kemur fram sem uppistandari. Frammistaða hennar í sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað og kvikmyndinni Ljósvíkingar er eftirminnileg og Vigdís er svo sannarlega fjölhæf og hæfileikarík. Hlekkur á spjallið í fyrstu athugasemd.

37.þáttur: GóiGuðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun...
11/07/2026

37.þáttur: Gói
Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann. Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi. Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur. Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini. Hann er þakklátur fyrir hlutskipti sitt og elskar að starfa í leikhúsinu. Tengill á þáttinn í fyrstu athugasemd.

36.þáttur: Pétur PéturssonPétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á n...
03/07/2026

36.þáttur: Pétur Pétursson
Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna. Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd. Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR. Pétur starfaði um árabil sem ljósmyndari og rak eigin ljósmyndastofu. Hann þjálfaði kvennalið Vals árin 2017-2024 sem hampaði ófáum titlunum undir hans stjórn. Þrátt fyrir þennan afbragðs árangur fékk hann að lokum reisupassann. Pétur er mikill áhugamaður um tónlist og hefur látið sig dreyma um að læra hljóðupptökur, bassa- og gítarleik þó ekkert hafi enn orðið af því. (Tengill á þáttinn í fyrstu athugasemd)

35.þáttur: Gunnar Árnason.Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt h...
25/06/2026

35.þáttur: Gunnar Árnason.
Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar og er margverðlaunaður. Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann. Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn helsta örlagavald í bransanum og fyrir nokkrum árum gaf hann besta vini sínum nýra. Tengill á spjallið í fyrstu athugasemd.

34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir.Leikkona, söngkona, bókmenntafræðingur, menningarfræðingur, dagskrárgerðarkona, femin...
19/06/2026

34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir.
Leikkona, söngkona, bókmenntafræðingur, menningarfræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari. Brynhildur hefur frá mörgu að segja enda komið víða við. Þættir hennar, Hold, á Rás 2, hafa vakið verðskuldaða athygli. Hlekkur á spjallið í fyrstu athugasemd.

33.þáttur:  Björn StefánssonBjörn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus.  Hann kom öllum á óvart...
11/06/2026

33.þáttur: Björn Stefánsson
Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009. Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku. Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki. Alkóhólískt heimilishald hafði mikil áhrif á æsku- og unglingsár Björns sem er með bók í smíðum. Hlekkur á viðtalið í fyrstu athugasemd!

32.þáttur: Helga MöllerHún hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands.  Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt ...
01/06/2026

32.þáttur: Helga Möller
Hún hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands. Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu Þú & ég plötuna. Helga kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi. Hún á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf langað til að gera. (tengill á viðtalið í fyrstu athugasemd)

31.þáttur:  Guðmundur PéturssonGuðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónv...
20/05/2026

31.þáttur: Guðmundur Pétursson
Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall. Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir. Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu. Hlekkur er á viðtalið í fyrstu athugasemd.

Address

Skeljagrandi 14
Reykjavík
107

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jón Ólafs - Hlaðvarp posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Jón Ólafs - Hlaðvarp:

Shortcuts

Share

Category