14/10/2026
Nú brugðu tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, undir sig bensín- og rafhlöðufótunum og heimsóttu Leikfélagið Borg. Þar er verið að æfa leikrítið Afsakið hlé sem er gamanleikrit og fjallar um lífsins vandamál sem Ævar Eiður er að glíma við og reyna að leysa með aðstoð vina sinna. Við sögu koma Helgi Dagur, Mist Eik og Leifur Arnar. Við ræddum við leikarana auk þess að heyra í formanni leikfélagsins, Guðnýju Tómasdóttur og Lilju Nótt Þórarinsdóttur leikstjóra. Frumsýning er 16. okt. og þetta er skemmtun sem enginn má missa af.
Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify og eins á heimasíðu þáttarins sem er í athugasemdum her að neðan.