01/04/2026
„Þegar ekkert var tilbúið – en samt var byrjað.“
Það er haust í Grundarfirði.
Frystihúsið er að verða klárt… en eitt stórt vandamál blasir við:
👉 Það vantar fólk.
👉 Og það vantar húsnæði.
Það er farið að styttast í að frysting geti hafist og þá er ákveðið að byrja vinnslu um leið og hún er klár því augljóst sé að vant fiskvinnslufólk sé ekki að fá og því ágætt að ráða fólk til starfa til þess að þjálfa það fyrir vetrarvertíðina.
En haustið reyndist erfitt veðurfarslega þannig að lítið kom af afla í húsið þannig að fólk fékk litla þjálfun. Það er hins vegar horft til vetrarvertíðar og þess að ef ráða þarf aðkomufólk sé ljóst að húsnæði vanti og stjórnin ákveður þá að gera „Grundarfjarðarhúsin“ (Neshúsin) eins og þau eru nefnd í fundagerð, þannig úr garði að þar sé hægt að koma fyrir starfsfólki frystihússins.
Og á þessum fundi í byrjun nóvember ræðir stjórnin um nauðsyn þess að frystihúsið reki verslun og fari þess á leit við Odd framkvæmdastjóra að hann leigi eða selji frystihúsinu húsnæði undir verslun. Um þetta eru þeir heimamenn sammála en vantar álit sunnanmanna svo ákveðið er að senda þeim fundargerðina þar sem þetta er rætt og ákveðið. En það er þó eitt sem er ljóst að mati stjórnar þegar kemur fram í desember að til þess að reksturinn geti gengið þurfi kaupgjald fólks að lækka.
Framkvæmdastjóra er falið að tala við fólkið sem sækist eftir vinnu hjá húsinu að það verði að sætta sig við launalækkun ef frystihúsið eiga að vera starfrækt. Og fundur er væntanlegur hjá verkalýðsfélaginu. Þar var þessu útspili stjórnar ekki tekið vel og laust fyrir áramót eða 28 desember funda stjórnir félaganna saman og reyna að komast að samkomulagi sem að lokum tekst með tilboðum og gagntilboðum á báða bóga og friður semst en í mars ákveður stjórn frystihússins að segja upp þessum samningum fiskvinnslufólksins.
Þá er það einnig ákveðið að gera aðstöðu fyrir fiskvinnslufólk á lofti Svartaskála og byggja á hann tvo kvisti þar sem hið fyrr umtalaða húsnæði þ.e Neshúsin sé ekki mönnum bjóðandi.
Þetta er ekki bara saga um hús og vinnu.
Þetta er saga um:
✔ baráttu
✔ ákvarðanir undir pressu
✔ og samfélag að reyna að byggja eitthvað upp frá grunni
👉 Svona varð atvinnulíf til í Grundarfirði.
👉 Ekki fullkomið – en ótrúlega kraftmikið.
Hvað finnst ykkur – hefðum við tekið sömu ákvarðanir í dag? 👇