13/08/2021
Þó að Blómstrandi dögum sé formlega aflýst með tilheyrandi skemmtidagskrá, brennu, söng og pallapartýum fram á nótt, þá ætlar Hveragerðisbær að gleðja börnin með stuttri en hressilegri leiksýningu í fyrramálið. Íbúar hafa margir ákveðið að halda í hefðina og skreytt garða sína og hús og ein og ein bílskúrssala og listagallerý verða opin með tilheyrandi sóttvarnareglum. Vonandi fáum við svo að halda risastóra bæjarhátíð með öllu okkar húllumhæi, blómum og ís á næsta ári. Góða helgi.
Leikhópurinn Lotta kemur í heimsókn til okkar í Lystigarðinn á Fossflöt laugardaginn 14. ágúst kl. 11 með ævintýralegt skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er í boði Hveragerðisbæjar og geta bæjarbúar því notið sér að kostnaðarlausu. Það verður aðeins annar ...