Listrými / Artspace

Listrými / Artspace Listrými er fræðslu- og útgáfufélag í eigu Guðrúnar A. Tryggvadóttur. Artspace publishing and art education is owned by Guðrún A. Tryggvadóttir.

Nýtt LISTRÝMI opnar í Hveragerði.Það verður smá seinkun á opnunni hjá mér en ný dagsetning er sunnudagurinn 25. janúar í...
13/01/2026

Nýtt LISTRÝMI opnar í Hveragerði.
Það verður smá seinkun á opnunni hjá mér en ný dagsetning er sunnudagurinn 25. janúar í stað 17. janúar eins og ég var búin að tilkynna.
Vonandi breytir það engu og þið komið bara samt 😉 Hlakka mikið til að sjá ykkur öll!

Módelveisla í nýju LISTRÝMI Fyrsta námskeiðið í nýju húsnæði Listrýmis verður módelveisla á laugardögum í janúar og febr...
04/01/2026

Módelveisla í nýju LISTRÝMI

Fyrsta námskeiðið í nýju húsnæði Listrýmis verður módelveisla á laugardögum í janúar og febrúar.

Teiknað verður eftir lifandi módeli í allskonar stellingum, á allskonar hátt og með alllskonar tækni. Aðaláhersla verður lögð á gleði, flæði, tilgerðarleysi og persónulega tjáningu með það að markmiði að skynja mannslíkamann, sem er auðvitað við sjálf en hann speglar öll þrívíð form í þessum heimi. Þátttakendur fá heimaverkefni til að fást við á milli tíma.

Tímar:
Laugardagana 24. janúar og 07. og 21. febrúar.
frá kl. 10:00 til 16:00.
Námskeiðsgjald: 68.000, allt efni innifalið.
Skráning í síma 863 5490 eða
[email protected]

LISTRÝMI
Mánamörk 3-5 – 810 Hveragerði
Guðrún Arndís Tryggvadóttir

[email protected]
tryggvadottir.com

Nýtt LISTRÝMI opnar í Hveragerði Laugardaginn 17. janúar opnar LISTRÝMI dyr sínar í nýju húsnæði að Mánamörk 3-5 í Hvera...
04/01/2026

Nýtt LISTRÝMI opnar í Hveragerði

Laugardaginn 17. janúar opnar LISTRÝMI dyr sínar í nýju húsnæði að Mánamörk 3-5 í Hveragerði. Verið velkomin að líta við á milli kl. 14:00 og 18:00.
Guðrún Arndís Tryggvadóttir er eigandi Listrýmis en hún er starfandi myndlistarmaður með langa reynslu af námskeiðahaldi í myndlist en hún hefur m.a. rekið eigin skóla, kennt við listaskóla, listaháskóla og haldið og skipulagt fjölda námskeiða á undanförnum árum og áratugum.
Megin áherslan Listrýmis er, auk þess að vera vinnustofa Guðrúnar og sýningarrými, að bjóða upp á fjölbreytt námskeið, bæði í hugmyndaþróun sem og efnisnotkun.

LISTRÝMI
Mánamörk 3-5 – 810 Hveragerði
Guðrún Arndís Tryggvadóttir

[email protected]
tryggvadottir.com

Address

Mánamörk 3/5
Hveragerdi
810

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listrými / Artspace posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Listrými / Artspace:

Share

Category