15/08/2026
Dagurinn í dag er í Aabenraa, sem er fallegur bær á Suður-Jótlandi. Bærinn er þekktur fyrir góða höfn og mikla skipaflutninga. Þar er ein af flottustu göngugötum í Danmörku, og að sjálfsögðu er þar bókabúð. Bog & idé bókaverslanir eru staðsettar í flestum stærri bæjum í Danmörku.
Í versluninni í Aabenraa var stórafsláttur af barnabókum. Það er skemmtilegt að hugsa til þess einmitt núna, þar sem danska ríkisstjórnin hefur sett af stað landsátak til að efla lestraráhuga barna. Fjármagnið, 20 milljónir DKK, er notað til að kaupa og dreifa barnabókum til dagvistunar og leikskóla um allt land, í gegnum landsmiðstöðvar bókasafna. Markmiðið er að tryggja öllum börnum aðgang að góðum bókum, styrkja málþroska og skapa jákvæða lestrarupplifun frá unga aldri.💛❤️💚💙