Brekkukot "sælureitur í sveit" Luxury farmhouse

Brekkukot "sælureitur í sveit" Luxury farmhouse Brekkukot er góður staður að dvelja á og njóta lífsins. Vel staðsett í miðjum Skagafirði og stutt í a Gestgjafi,
A. Herdís Sigurðardóttir. Heimili að heiman. BBQ.

Brekkukot er heimili mitt, fullbúið 133 fm2 einbýlishús. Við þjóðveg nr. 1 í Akrahreppi Skagafirði. Gisting fyrir allt að 8 manns. Lámarksdvöl í húsinu eru 2 nætur.
Í húsinu eru 3 svefnherbergi, öll geta verið fyrir 2 gesti. Einnig er 2 svefnsófar í stofunni og auka svefndýnur eru til staðar.
Í eldhúsinu er fallegur borðbúnaður úr ýmsum áttum. Uppþvottavél ásamt tvöföldum bakarofni, tvískiptur ís

skápur, keramikhelluborð og gasgrill á veröndinni.
Í þvottahúsinu er þvottavél og þurrkari ásamt aukasturtu og klósetti.
1 salerni er í húsinu með sturtu og hárblásara.
Þráðlaust net, sjónvarp og blu ray spilari. Notaleg stofa með kamínu. Dásamlegar gönguleiðir í nágrenninu svo engum ætti að leiðast hvort sem er í útivist eða njóta inniveru og hvíla sig. Lóðin er afgirt og næg bílastæði innan hennar. Innifalið í leiguverði er grunnur að morgunmat ss. kaffi, te, mjólk, safi, brauð, álegg, ostur, ávextir, sætabrauð og fl. auk þess lín á rúm, handklæði, hreinlætisvörur á baði, í eldhúsi og þvottahúsi ásamt þrifum á húsnæði á farardegi. Sem dæmi um aukaþjónustu gegn gjaldi eru máltíðir, auka rúmföt, handklæði, og auka þrif. Hádegisverð eða kvöldverð fyrir að lámarki 6 manns þarf að sérpanta með góðum fyrirvara. Leiguverð árið 2022 er 130.000 kr. fyrir 2 nætur sem er lámarksdvöl. Vikuleigan er 290.000 kr. Greiða þarf fyrir gistingu eigi síðar en 2 dögum fyrir komudag með innborgun á reikning. Bókið gistingu á [email protected] eða sendið skilaboð hér á síðunni. Allar nánari upplýsingar veitir Herdís í síma 6996102 eða tölvupósti [email protected]


Host,
A. Brekkukot is my home, a fully equipped villa on the highway (road 1) in Skagafjörður, Northwest Iceland. A home away from home. Accommodation for up to 8 people. Minimum stay, 2 nights. The house has 3 bedrooms, all can be double room if needed. There is also a double sofa bed in the open space and extra sleeping mats are available. Tastefully decorated and fully equipped kitchen with everything you would need for a relaxing holiday. Laundry room has a washing machine and dryer plus an extra shower and toilet.
1 toilet with shower and hair dryer. Free WIFI, television and Blu ray player. Cozy living room with fireplace. Wonderful hiking trails around. Breakfast is included in the renting price such as coffee, tea, milk, juice, bread, cheese, fruit, pastries and etc. Linen on beds, towels, toiletries in the bath, kitchen and laundry room as well as cleaning of departure day. Examples of extra services for a fee include meals, extra bed linen, towels, and cleaning. Lunch or dinner for a minimum of 6 people must be individually ordered in advance. Rental price for the hole house in 2022 is ISL 130,000. Minimum stay 2 nights. Weekly rent is ISL 290,000. You have to pay for accommodation 2 days before you arrive by deposit to account. Book accommodation at [email protected]

For more information, contact the host Herdis phone +354 699 6102 or email [email protected]

Kæru fylgjendur.Brekkukot "sælureiturinn minn í sveitinni" er seldur.Ég þakka öllum þeim sem heimsótt hafa staðinn og dv...
28/04/2023

Kæru fylgjendur.

Brekkukot "sælureiturinn minn í sveitinni" er seldur.
Ég þakka öllum þeim sem heimsótt hafa staðinn og dvalið um stund.
Nýjir eigendur fá afhent 1.maí 2023 og munu ekki halda áfram útleigu á staðnum.
Ég óska þeim velsældar og góðs gengis í framtíðinni í sínum verkefnum.
Þessari fésbókarsíðu verður lokað áður en langt um líður.

Nýr áfangastaður fyrir gesti að heimsækja í Skagafirði verður Héðinsminni í Skagafirði þar sem ég mun bjóða uppá gistingu fyrir að hámarki 10 manns og Áskaffi góðgæti í Héðinsminni veitingar ásamt fleiru.

Verið velkomin.
Kveðja, Herdís.

Spennandi hlutir að gerast í Skagafirði :)
29/01/2023

Spennandi hlutir að gerast í Skagafirði :)

Héðinsminni - nýr áfangastaður í Skagafirði 2023
fyrir hópa í mat og drykk.
Verið velkomin í Héðinsminni í Skagafirði þar sem Áskaffi góðgæti býður matseðil fyrir hópa sem eru áhugasamir um að bragða heimilislegan mat.
Héðinsminni er við hringveginn (þjóðveg nr. 1) í Blönduhlíðinni, um 10 mín akstur frá Varmahlíð þegar ekið er austur um til Akureyrar.
Hádegisverð þarf að panta með dags fyrirvara.
Kvöldverð þarf að panta með fimm daga fyrirvara.
Lágmarksfjöldi í hóp er s*x manns.
Um nær tveggja áratuga skeið rak undirrituð kaffistofuna Áskaffi í einu húsa Byggðasafns Skagfirðinga í Glaumbæ á sama stað og safnið rekur sína eigin kaffistofu (sem heitir ekki Áskaffi svo því sé komið á framfæri). Í dag er Áskaffi góðgæti í Héðinsminni.
Ég hlakka til að taka á móti ykkur á nýjum áfangastað þar sem ég mun áfram leggja áherslu á að bjóða góðgæti eins og í Áskaffi.
Ýmsar nýjungar verða á boðstólum og um að gera að heyra í mér ef þið hafið áhuga að koma með hópinn ykkar í hádegismat, miðdagskaffi eða kvöldmat.
Verið hjartanlega velkomin í sveitina.
Nánari upplýsingar fást í síma 6996102 eða á [email protected]
Bestu kveðjur,
A.Herdís Sigurðardóttir

ps. Fyrirfram þakkir til þeirra sem deila og láta vita af þessum breytingum.

Address

Reykir

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brekkukot "sælureitur í sveit" Luxury farmhouse posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share