07/03/2026
Bíó Paradís, í samstarfi við Franska sendiráðið og Alliance Française, bjóða upp á listasmiðju í tengslum við sýningu myndarinnar Arco sunnudaginn 8. mars kl 14:00.
Bíó Paradís býður upp á tilboðið: „Tveir fyrir einn“ á þessa sýningu. Hægt er nýta tilboðið bæði í netsölu og miðasölu á staðnum.
Myndin vann sem besta teiknimyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum, hlaut hin virtu César verðlaun fyrir bestu teiknimyndina, var tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna og Óskarsverðlauna 2026 sem besta teiknimyndin.
Að myndinni lokinni verður skapandi teiknismiðja með Aron Daða Þórissyni. Viðburðurinn hentar öllum aldurshópum - ungum sem öldnum!
Aron Daði Þórisson er útgefandi fyrir safnritið Myndarsögur á Íslandi sem taka saman og setja fram það besta í íslenskri myndasögugerð. Hann hefur kennt áfanga í myndasögugerð við Myndlistarskóla Reykjavíkur ásamt smiðjum um víðan völl. Hér ætlar hann að bjóða ykkur að taka þátt á skapandi teiknismiðju þar sem ykkur er boðið að dreyma upp framtíðina sem þið viljið sjá. Öll velkomin.
Sjáið meira frá honum og fleiri listamönnum inni á Myndarsogur.is
Um myndina:
Arco er frönsk teiknimynd frá 2025 sem sameinar vísindaskáldskap, ævintýri og vináttu. Sagan fjallar um tíu ára gamlan dreng sem kemur frá fjarlægri, bjartri framtíð þar sem tímaferðalög eru möguleg. Í tilraun til að fljúga á eigin vegum lendir hann óvart árið 2075, þar sem hann hittir unga stúlku að nafni Iris sem tekur hann inn og hjálpar honum við að reyna að koma aftur til síns tíma. Myndin kannar vináttu, forvitni og áskoranir í framtíðarheimi sem er bæði óvenjulegur og kunnuglegur.
Myndin er sýnd á frönsku með íslenskum texta.
Nánar: https://bioparadis.is/mynd/801_arco/