Video Rekkinn

Video Rekkinn Hildur og Ragnar gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó.

Hlaðvarp um kvikmyndir þar sem þáttastjórnendur taka fyrir ákveðna manneskju og kryfja feril viðkomandi með því að horfa á bíómyndir með viðkomandi og gasa um þær viklega. Þættirnir koma út á mánudögum (svona yfirleitt)

Í þætti dagsins ræðum við nýafstaðna Menningarnótt, haustið sem er að fara að byrja og pökkun í ferðatösku. En mestu tím...
24/08/2026

Í þætti dagsins ræðum við nýafstaðna Menningarnótt, haustið sem er að fara að byrja og pökkun í ferðatösku.
En mestu tíma verjum við í að fjalla um myndina The End of Oak Street, en þar til aðstoðar fáum við Bíófíkilinn Kjartans Rúnarsson.

En sem sönnum Bíófíkli sæmir er hann einnig að minna á sýningu Bíófíkla sem er einmitt í dag, en við hvetjum alla til að kíkja á þetta⬇️

https://fb.me/e/4biOUu3CB

Í þætti dagsins ræðum við stóru mál vikunnar sem nú er að líða, sólmyrkvann, Stjörnu-Sævar og ESB.Hildur er með stutt ís...
17/08/2026

Í þætti dagsins ræðum við stóru mál vikunnar sem nú er að líða, sólmyrkvann, Stjörnu-Sævar og ESB.
Hildur er með stutt íslenskunámskeið fyrir Ragga og að lokum fjöllum við um rómantísku gamanmyndina One Night Only, en við höfðum sitthvað um hana að segja.

Ekkert messufall í dag, bara smá sein, en í þessum extra stutta þætti ræðum við heima og geima eins og vanalega. Endileg...
10/08/2026

Ekkert messufall í dag, bara smá sein, en í þessum extra stutta þætti ræðum við heima og geima eins og vanalega. Endilega kíki á þetta. En mynd vikunnar er Mamma Mia sem við fórum á í Bíó Paradís :)

í þætti dagsins ræðum við útilegur, bæjarhátíðir og margt annað.En fyrst og fremst ræðum við nýjustu Marvel myndina Spid...
03/08/2026

í þætti dagsins ræðum við útilegur, bæjarhátíðir og margt annað.
En fyrst og fremst ræðum við nýjustu Marvel myndina Spider-Man: Brand New Day.

Í lok þáttar förum við yfir það allra nauðsynlegasta sem þú þarft að horfa á áður en næsta Marvel veisla dettur í hús Doomsday.

Það var engin bíómynd frumsýnd á Íslandi í nýliðinni viku þannig Video rekka tvíeykið skellti sér á föstudagspartísýning...
27/07/2026

Það var engin bíómynd frumsýnd á Íslandi í nýliðinni viku þannig Video rekka tvíeykið skellti sér á föstudagspartísýningu í Bíó Paradís og kultklassíkina Muriels Wedding.

Í þætti dagsins ræðum við um þegar frægir hitta fræga, bæjarhátíðir um land allt næstu helgi. Við ræðum evrópusambandið ...
13/07/2026

Í þætti dagsins ræðum við um þegar frægir hitta fræga, bæjarhátíðir um land allt næstu helgi. Við ræðum evrópusambandið á mjög grunnan máta en mestum tíma verjum við að ræða um nýjustu Evil dead myndina Evil Dead Burn.

Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land. Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo s...
06/07/2026

Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land.

Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo smá um nýjustu Minions myndina, Minions & Monsters. Þetta er svona meira bæjarhátíðarþáttur þessa vikuna frekar en kvikmyndahlaðvarp 😂

Í þætti dagsins ræðum við bæjarhátíðir á Íslandi af mikilli ástríðu, aðallega af því að okkur finnst myndin sem við rædd...
29/06/2026

Í þætti dagsins ræðum við bæjarhátíðir á Íslandi af mikilli ástríðu, aðallega af því að okkur finnst myndin sem við ræddum svo afspyrnu leiðinleg. En svona er þetta: nýr mánudagur, nýr þáttur

Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki h...
22/06/2026

Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki hefur nokkurn tíma séð.

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Video Rekkinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category