Um er að ræða alþýðlegt fræðslurit þar sem birtar eru greinar um náttúrufræði og umhverfismál, jafnt fræðilegar greinar í bland við almennan fróðleik. Náttúrufræðingurinn er tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags (HÍN) og Náttúruminjasafns Íslands (NMSÍ). Um er að ræða alþýðlegt fræðslurit þar sem birtar eru greinar um náttúrufræði, jafnt fræðilegar greinar í bland við almennan fróðleik. Margar greinar í ritinu fjalla um rannsóknaniðurstöður á íslenskri náttúru sem eru hvergi birtar annars staðar. Leitast er við að gera efninu skil á aðgengilegan hátt þannig að áhugasamir leikmenn sem og fræðimenn geti haft bæði gagn og gaman af, þó án þess að slakað sé á í kröfum um gæði og áreiðanleika.
Í hverjum árgangi eru fjögur hefti sem ýmist eru gefin út stök eða fleiri saman. Áskrift að tímaritinu er innifalin í félagsgjaldi HÍN. Ritið er auk þess keypt af ýmsum stofnunum og nálgast má Náttúrufræðinginn á öllum helstu bókasöfnum landsins og kaupa í lausasölu í bókabúðum Pennans Eymundsson. Náttúruminjasafn Íslands og Hið íslenska náttúrufræðifélag gerðu með sér samning um ritstjórn og útgáfu á Náttúrufræðingnum í febrúar 2014. hefti í 84. árgangi hefur Náttúrufræðingurinn verið gefinn út í nafni félagsins (HÍN) og safnsins (NMSÍ) í samræmi við samninginn. Ritstjóri er Margrét Rósa Jochumsdóttir sem er starfsmaður HÍN og NMSÍ sem skipta með sér launakostnaðinum og útlögðum kostnaði til helminga. Afgreiðsla Náttúrufræðingsins er í húsakynnum Náttúruminjasafns Íslands, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, þar sem ritstjórinn hefur skrifstofuaðstöðu. SAGA NÁTTÚRUFRÆÐINGSINS
Útgáfa Náttúrufræðingsins hófst árið 1931 og hefur verið samfelld í rúmlega níu áratugi. Upphaflegt markmið með útgáfunni var að gefa út alþýðlegt rit um náttúrufræði sem þrátt fyrir margar útlitsbreytingar í gegnum tíðina, hefur haldist allar götur síðan. Upphafsmenn ritsins og eigendur voru dr. Árni Friðriksson fiskifræðingur og dr. Guðmundur G. Bárðarson jarðfræðingur og sáu þeir um útgáfuna í sameiningu þar til Guðmundur andaðist árið 1933. Eftir það bar Árni hitann og þungann af útgáfunni með aðstoð ýmissa velunnara. Í fyrstu var hugmynd þeirra félaga með ritinu helst sú að taka saman á einn stað og halda til haga efni sem þeir sjálfir og aðrir birtu í dagblöðum um náttúrufræði á þeim tíma. Fljótlega jókst þó umfang frumsamins efnis í blaðinu og útgáfan varð stofnendunum mun erfiðari og dýrari en þeir sáu fyrir í upphafi. Fyrstu árin var útgáfa ritsins því oft á tíðum stopul. Örðugt reyndist að innheimta áskriftargjöld hjá fátækum almenningi og eftir að heimsstyrjöldin braust út var oft á tíðum vandkvæðum bundið að útvega nothæfan pappír í ritið. Að endingu árið 1940 ákvað Árni að selja hugarfóstur sitt Guðjóni Guðjónssyni yfirprentara í von um að það mætti blása lífi í útgáfuna. Þær vonir gengu ekki eftir og ári síðar skipti Náttúrufræðingurinn enn á ný um eigendur þegar Hið íslenska náttúrufræðifélag keypti ritið.
Á fyrstu árum útgáfunnar sáu ritstjórarnir að miklu leyti um skrif í ritið. Mikið af efninu samanstóð af almennum fróðleik um náttúrufræði sem þýtt var og endursagt úr erlendum heimildum enda lítið um bækur eða annað útgefið efni um náttúrufræði tiltækt á íslensku á þeim tíma. Eftir því sem íslenskum náttúrufræðingum fjölgaði jókst fjöldi þeirra sem skrifuðu greinar í ritið og að sama skapi vó efni um rannsóknir á íslenskri náttúru þyngra.
Á árunum 1996-2006 hafði Náttúrufræðistofnun Íslands umsjón með ritstjórn og útgáfu Náttúrufræðingsins samkvæmt þar að lútandi verktökusamningi við félagið. Á tímabilinu 2006-2010 hafði Náttúrufræðistofa Kópavogs umsjón með ritstjórn og útgáfu tímaritsins. Nýr samningur um útgáfu Náttúrufræðingsins var svo gerður í febrúar 2014 við Náttúruminjasafn Íslands en með breyttu sniði frá fyrri samningum að því leyti að í fyrsta skipti var kostnaður við útgáfuna borinn af báðum útgefendum.