Sóley Kristjáns

Sóley Kristjáns Allt byrjar sem hugmynd og svo sérðu hvert það tekur þig. Láttu það eftir þér að láta ljós þitt skína og leyfðu öðrum að njóta þess sem þú hefur fram á að færa.

Í uppistandi sínu einblínir Sóley á brasið sem getur fylgt því að finna taktinn í þessu lífi, hún kemur pottþétt líka inn á eitthvað uppbyggilegt og svo verður jafnvel einhver misskilningur um þetta allt saman. Lítið er um endurtekið efni á milli sýninga þó ramminn sé sá sami, enda ekki hægt að gera ráð fyrir að kona á miðjum aldri geti munað allt á milli sýninga! Hún er líka með hlaðvarpið "Að finna taktinn: Breytingaskeiðið", ef þú átt eftir að hlusta á það þá mælum við með að þú skellir það í spilarann og hlustir á skemmtileg spjöll við konur sem vita um breytó og öllum sem því fylgir.

„Ferskasta og fyndnasta uppistand sem ég hef séð í lengri tíma. Sóley er fáránlega fyndin og sjarmerandi og smitar áhorfendur af einstakri lífsgleði og peppi.“ – Dóra Jóhannsdóttir, stofnandi Improv Ísland og leikstjóri Áramótaskaupsins 2022

“Frábært uppistand, svo mikilvægt að sjá fyndnu hliðarnar á þessu blessaða skeiði. Frábært hláturskvöld með vinkonuhópnum!” – Halldóra Skúla, Kvennarad.is

“Fáránlega fyndið! Geggjað flæði, ferskt efni og ómótstæðileg einlægni. Þetta var eins og að vera í hláturskasti með góðri vinkonu í klukkutíma.” - Miðaldra kona alveg að detta í breytó

“Ég hló svo mikið að eg var með harðsperrur í maganum daginn eftir. Geggjuð sýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.” – Kona á breytó

12/09/2026
Fékk þessa mynd senda af mér, tekin á opnunarhátið Hinsegin daga 2026. Þetta er gleðin sem ríkir þegar öll fá að vera ei...
08/09/2026

Fékk þessa mynd senda af mér, tekin á opnunarhátið Hinsegin daga 2026. Þetta er gleðin sem ríkir þegar öll fá að vera eins og þau eru, einlæg og alvöru gleði. Þvílík lífsins lukka að hafa fundið mitt tribe, að hafa verið dregin út úr "skápnum" sem ég vissi ekki að ég væri inn í þarna um árið. Megi öll finna sitt fólk og finna sátt í eigin skinni 🌈🏳️‍⚧️

📸 🥰

“Mamma Sóley með blöðrur á afmælinu sínu og hér er hárið þitt” 😄😍❤️ - Írena Ósk, 4 ára
05/09/2026

“Mamma Sóley með blöðrur á afmælinu sínu og hér er hárið þitt” 😄😍❤️ - Írena Ósk, 4 ára

Fyrsta Pride var uppreisn! 28. júní 1969 í New York fékk hópur hinsegins fólks nóg af tilefnislausum árásum löggunnar á ...
08/08/2026

Fyrsta Pride var uppreisn!

28. júní 1969 í New York fékk hópur hinsegins fólks nóg af tilefnislausum árásum löggunnar á sig og sína og barðist á móti. Ári síðar var þess minnst með fyrstu formlegu Pride göngunni.

Nú, 57 árum síðar, erum við enn að berjast við fordóma í garð hinsegin fólks og göngum því enn.

Það eru sjálfsögð mannrettindi að fá að vera maður sjálfur, það er basic. En fyrir sum er þetta eð flókið, það fólk leyfir sér að hafa skoðanir á hlutum sem koma þeim ekki við og vogar sér að halda því fram að það megi nú alveg fá að vera ósammála eða vanti að “skilja” til að geta sýnt virðingu.

Fordómar og hatur er val og ákvörðun, að vera hinsegin er hvorki val né ákvörðun - nema mögulega að því leyti að velja á milli þess að lifa sinn eigin sannleika og ákveða að fylgja því eftir eða lifa vansæl og bitur, eða bara alls ekki.

Sem hvít lessa finn ég í raun lítið sem ekkert fyrir bakslaginu dagsdaglega, en ég finn að andrúmsloftið er breytt. Öll eru ekki örugg, sérstaklega ekki trans fólk og það þýðir að baráttunni er ekki lokið og því göngum við enn. Við munum þó líklegast alltaf ganga af því að þegar að réttindum allra er náð þá verður heldur betur tilefni til þess að fagna og gleðjast saman.

Sýnum stuðning í verki og sjáumst í göngunni
🏳️‍🌈 🏳️‍⚧️ ❤️ 🧡 💛 💚 💙 💜

📸 https://edition.cnn.com/interactive/2019/06/us/stonewall-pride-fred-mcdarrah-cnnphotos/

Útilegu Sóley skrapp austur í sumar sæluna. Í dásamlegum félagsskap litlu fjölskyldunnar og tengdafjölskyldunnar voru fi...
25/07/2026

Útilegu Sóley skrapp austur í sumar sæluna. Í dásamlegum félagsskap litlu fjölskyldunnar og tengdafjölskyldunnar voru firðirnir skoðaðir, sundlaugarnar teknar út og ég fékk að skemmta heimafólki með eitt stykki uppistand. Gott þetta líf 🥰❤️

16/07/2026

Sumarfríið

📸 .litzgautz
10/07/2026

📸 .litzgautz

30/01/2026

Konur þurfa bara … að leysa málið! Leikurinn sýndur á stóra tjaldið í Tjarnarbíó og svo uppistand í beinu framhaldi! Áfram Ísland! 🥳☄️🇮🇸

Það á að hvíla sig að vetri til ...Ég er á því að við eigum að hvíla okkur þegar kaldast er, leggjast í dvala eins og ná...
04/01/2026

Það á að hvíla sig að vetri til ...

Ég er á því að við eigum að hvíla okkur þegar kaldast er, leggjast í dvala eins og náttúran gerir. Frá nóvember til febrúar eigum við að hreyfa okkur hægt og spara orkuna. Svo í mars þegar byrjar að vora og birta til þá byrjum við líka að gera okkur til fyrir að blómstra og vera virk. Í október byrjum við svo að pakka aftur saman og undirbúa okkur fyrir að leggjast aftur í dvala í nóvember. Það er tempó sem meikar sense, enda erum við partur af náttúrunni.

Kv. Sóley, Írena Ósk & Lúlla
📸 Karen Ósk

Jólaútgáfan okkar af “Konur þurfa bara …” kom mér heldur betur í jólaskap! Takk fyrir hláturinn og samveruna! 🥳🎄🧑‍🎄 📸
12/12/2025

Jólaútgáfan okkar af “Konur þurfa bara …” kom mér heldur betur í jólaskap! Takk fyrir hláturinn og samveruna! 🥳🎄🧑‍🎄

📸

Address

Tjarnargata 12
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sóley Kristjáns posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sóley Kristjáns:

Shortcuts

Share

Category