30/07/2026
Gunnar Þórðarson er fallinn frá 81. árs að aldri. Gunnar átti engan sinn líkann í íslensku tónlistarlífi. Eftir hann liggja yfir áttahundruð lög og tónsmíðar. Hann var meðlimur í Hljómum, Trúbroti, Ríó Tríó og Lummunum. Gunnar átti stóran þátt í að skapa hljóm sjöunda áratugarins með perlum eins og "Fyrsti kossinn" og "Bláu augun þín".
Í kjölfarið fylgdi fjöldi annarra lagasmíða sem fylgt hafa þjóðinni í áratugi. Það má með sanni segja að Gunnar Þórðarson hafi leitt nýja kynslóð til afreka á tónlistarsviðinu, kynslóð sem seinna var kölluð "bítlakynslóðin".
Við hjá Öldu Music vottum fjölskyldu Gunnars samúð okkar og þökkum fyrir gæfuríkt samstarf á liðnum áratugum.