21/08/2019
Við viljum bjóða dyggum hlustendum og hátíðargestum menningarnætur til fagnaðarhalda. Underworld þátturinn fagnar nú 4 ára afmæli og býður út vöfflur og meððí'
Herlegheitin fara fram að Háteigsveg 3 - Íbúð 302
- á milli 16:00 - 18:00
Þið eruð auðvitað öll guðvelkomin í undirheimana
Við stjórnendur útvarpsþáttarins UnderworldIS höldum uppi laufléttu tralli og sprelli, bökum vöfflur og bjóðum gestum og gangandi inn fyrir hússins dyr , bókstaflega og andlega.. Spilum lifandi lúxus músík, Hús- og Techno tónlist, heimagerðar sultur að norðan og kaffi að sunnan...